Tímatafla í Bikarúrslitaleik Bikar tímatafla Íslandsmót í parasveitakeppni Úrvalsdeildin Skráning á Reykjavik Bridgefestival Dregið í 8 liða úrslit í bikarnum. Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 17. apríl 2009

Bridgefélag Selfoss: Síðasta móti vetrarins lokið

Síðasta keppni vetrarins var eins kvölds tvímenningur, sem fór fram fimmtudaginn 16. apríl. Spilaður var Howell tvímenningur með 10 pörum, þrjú spil á milli para.

þriðjudagur, 14. apríl 2009

Bf. Kópavogs

Þriggja kvölda Butler tvímenningur hefst fimmtudaginn 16.apríl n.k.

föstudagur, 10. apríl 2009

Páskamót Bridgefélags Hafnarfjarðar

Öll úrslit hér

þriðjudagur, 31. mars 2009

Páskatvímenningur í Hafnarfirði

Tveggja kvölda Páskatvímenningur hófst í gær og var spilaður monrad-barómeter með 18 pörum. Halldór Einarsson og Guðni Ingvarsson náðu besta skorinu en annars er keppnin mjög jöfn eins og oft áður.

föstudagur, 27. mars 2009

Bridgefélag Selfoss - Kristján og Helgi/Guðm. Þór enn efstir í Íslandsbankatvímenningnum

Annað kvöldið af þremur í Íslandsbankatvímenningnum 2009 var spilað fimmtudaginn 26. mars. Staða efstu para þessi: Kristján Már Gunnarsson - Guðmundur Þ.

fimmtudagur, 26. mars 2009

Halldórsmót B.A.

Halldórsmót B.A. Spilamennskan hjá Bridgefélagi Akureyrar er í fullum gangi en nú er nýlokið þriggja kvölda Board-a-Match Halldórmóti. Það er hraðsveitakeppni þar sem hvert spil gefur stig fyrir hærri tölu auk þess sem impamunur veitir stig.

fimmtudagur, 26. mars 2009

Miðvikudagsklúbburinn: 30 pör mættu 25. mars!

Sigrún Pétursdóttir og Unnar Atli Guðmundsson voru efst af 30 pörum og unnu sér inn sitthvort páskaeggið. Þau fengu 62,6% skor. Sigurður Kristjánsson og Eiríkur Sigurðsson voru í 2. sæti með 61,8% og Ingólfur Hlynsson og Hermann Friðriksson enduðu í 3ja sæti með 61,5%.

þriðjudagur, 24. mars 2009

Tvær sveitir enduðu jafnar í Hafnarfirði

Eftir að keppnisstjóri þurfti að leiðrétta tvö spil síðla kvölds kom í ljós að tvær sveitir urðu efstar og jafnar í þriggja kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar sem lauk í gærkvöldi.

föstudagur, 20. mars 2009

Bridgefélag Selfoss: Íslandsbankatvímenningurinn hafinn

Keppni hófst í Íslandsbankatvímenningnum 2009 fimmtudaginn 19. mars. Mótið er þriggja kvölda Barómeterl tvímenningur, þar sem pörin spila 6 spil á milli sín.

miðvikudagur, 18. mars 2009

Miðvikudagsklúburinn: Það var mikil spenna í 24 para tvímenning

Jón Alfreðsson og Eiríkur Jónsson voru efstir af 24 pörum með +74,8. Þeir voru aðeins 3,3 stigum á undan Gabríel Gíslasyni og Sigurðui Steingrímssyni sem voru 1,1 stigi á undan Huldu Hjálmarsdóttur og Halldóri Þorvaldssyni.

þriðjudagur, 17. mars 2009

Bf. Kópavogs - hraðsveitakeppni

Bridgefélag Kópavogs 3ja kvölda hraðsveitakeppniFimmtudaginn 19.mars hefst hin geysivinsæla hraðsveitakeppni hjá félaginu.Skráning hjá Lofti í s.

fimmtudagur, 26. febrúar 2009

Aðalsveitakeppni Briddsfélags Selfoss hálfnuð

Nú er lokið 4 umferðum af 7 í aðalsveitakeppni briddsfélags Selfoss. Sveit Guðmundur Þór Gunnarsson leiðir mótið, með honum í sveit eru Ómar Olgeirsson, Gísli Hauksson og Magnús Guðmundsson.

miðvikudagur, 25. febrúar 2009

Reykjavíkurmótið í tvímenningi 28.feb

Reykjavíkurmótið í tvímenningi 2009 fer fram laugardaginn 28. febrúar. Spilamennska hefst kl. 11 í Síðumúla 37. Fyrikomulag fer eftir þátttöku en áætluð mótslok milli 18 og 18:30.Tilvalin æfing fyrir Íslandsmótið í tvímenning sem fer fram helgina eftir.

þriðjudagur, 24. febrúar 2009

Hermann og Jón Guðmar enn efstir Hafnarfirði

Hermann Friðriksson og Jón Guðmar Jónsson halda enn góðri forystu í Aðaltvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar þrátt fyrir að enda í 19 sæti á þriðja kvöldi af fjórum sl.

sunnudagur, 22. febrúar 2009

Tryggingamiðstöðin Suðurlandsmeistarar 2009

Suðurlandsmótið í sveitakeppni 2009 Suðurlandsmótið í sveitakeppni var haldið 21. og 22. febrúar í Tryggvaskála á Selfossi. Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar vann mótið með yfiburðum.

miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Óli Björn og Guðlaugur unnu 30 para tvímenning!

Óli Björn Gunnarsson og Guðlaugur Sveinsson unnu 30 para tvímenning með 62,9% skor. Þeir fengu að launum ostakörfur frá Ostabúðinni. Í 2. sæti með 61,7% skor voru Erla Sigvaldadóttir og Lovísa Jóhannsdóttir.

miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Fyrsti einmenningur B.A. 2009

�a� voru 20 �r��nir spilarar sem reyndu me� s�r � einmenningi og bar�ttan st�� helst � milli Gylfa og �ttars en �a� var Gylfi sem st�� sig best � lokasprettinum og n��i mj�g h�u skori.

þriðjudagur, 17. febrúar 2009

Jón Guðmar og Hermann efstir í Hafnarfirði

Jón Guðmar Jónsson og Hermann Friðriksson eru efstir eftir tvö kvöld af fjórum í aðaltvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. Þeir tóku forustuna strax í upphafi og eru með ríflega 5 prósenta forustu á næsta par.

mánudagur, 16. febrúar 2009

Reykjanesmót í sveitakeppni

Sveit F.M.E. urðu Reykjanesmeistarar í sveitakeppni 2009 mótið var haldið 14. og 15.febrúar s.l. Í sveitinni spiluðu Garðar Garðarsson, Kristján Kristjánsson, Karl G.

sunnudagur, 15. febrúar 2009

Akureyrarmeistarar í sveitakeppni

Eftir spennandi lokakvöld urðu Akureyrarmeistarar sveit Frímanns Stefánssonar þó að þeir í sveit Péturs Gíslasonar hafi nartað í hælana á þeim. Aðeins munaði þremur stigum fyrir síðasta leikinn eftir góðan sigur í honum var titillinn í höfn.